Geoffrey Stephen Kirk (3. desember 1921 – 10. mars 2003) var breskur fornfræðingur og textafræðingur. Hann er þekktur fyrir rit sín um frumherja grískrar heimspeki, forngrískar bókmenntir og gríska goðafræði.
Kirk hlaut menntun sína við Rossall School og Clare College, Cambridge. Kirk gerði hlé á námi sínu í Cambridge til þess að gegna herþjónustu. Hann gekk í breska sjóherinn og var lengst af á Eyjahafi. Hann sneri aftur til Cambridge árið 1946 og brautskráðist.
Kirk hlaut rannsóknarstyrk við Trinity Hall, Cambridge að námi sínu loknu en varð síðar lektor. Hann varð Regius prófessor í grísku árið 1974 en settist i helgan stein árið 1982.